29. janúar 2010

Garðskálinn - og fleira

Bíómyndahryðjuverk, bitur ungskáld og verkfallsaðgerðir

Kistan hefur náð tímamótasamningum við umsjónarmenn Garðskálans þess efnis að þættirnir verði eftirleiðis sýndir á Kistunni. Í framtíðinni er reiknað með að þættirnir verði sýndir á miðvikudagskvöldum til höfuðs Kiljunni (ekki þó alla miðvikudaga, það eru ekki allir jafn fljótir að lesa og Páll Baldvin og Kolbrún) en þessi fyrsti þáttur verður þó sýndur nú á föstudegi því við gátum hreinlega ekki beðið lengur.

 

Þessa vikuna verður þetta þó með nokkuð sérstöku sniði, enda ljóst að menningarheimar landsins skjálfa. Kvikmyndagerðarmenn eru ævareiðir yfir miklum niðurskurði í greininni og fékk Ólafur Jóhannesson de Fleur því þau Ágústu Evu, Ingvar E. Sigurðsson og Björn Thors til þess að leika í stiklu myndarinnar sem aldrei varð, Borgríki (smellið hér). Á meðan eru ungskáld landsins sem ekki komast á ritlaun jafnvel enn reiðari og þar komum við að Garðskálaþætti dagsins, Bókmenntir og kvikmyndir (smellið hér), en efni hans er kvikmyndagerð andspænis ljóðlistinni og hvers vegna ljóðlist er list en kvikmyndagerð ekki. Sérstakir gestir þáttarins eru Eiríkur Örn Norðdahl, póetíker, Ugla Egilsdóttir, leikkona, og allt castið úr Hvíta víkingnum ásamt fleirum. Sugababes flytja stutt tónlistaratriði.

 

En að venju hefur Hollywood lausnina, fallegi Hollywood-endirinn á þessari sögu er að finna í Speechless-myndböndum sem handritshöfundar í Bandaríkjunum og kvikmyndagerðarmenn unnu saman í kringum verkfall handritshöfunda fyrir nokkrum árum og sönnuðu þar með að öll listadýrin í skóginum geta verið vinir. Hér er eitt dæmið, þið finnið fleiri með því að gúgla Speechless WGA.

 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta

Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir var mikill dugnaðarforkur og bónusvíkingur á sínum yngri árum og vann þá ýmis störf til sjávar og sveita, en snemma fór þó að síga á ógæfuhliðina. Hún tók B.A. próf í bókmenntafræði og hefur síðan starfað á dagblaði, femínistatímariti, bókasafni og bókaforlagi, þýtt nokkrar bækur almenns efnis og skrifað fjórar ævisögur, m.a. um nöfnurnar Margréti Frímannsdóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur. 

Meira
Nýr kínversk-íslenskur menningarsjóður

Stofnaður hefur verið menningarsjóður sem ber enska heitið China Iceland Cultural Fund. Hvatamaður og fjárhagslegur bakhjarl sjóðsins  er kínverski kaupsýslumaðurinn og ljóðskáldi...

 
Aukasýningar á Munaðarlaus

Munaðarlaus eftir Dennis Kelly var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og fór í kjölfarið í hringferð um landið, var sýnd á Akureyri, Vopnafirði og á Eg...